Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fullorðin í Foreldrahúsum: Sambúðin góð í sorgarferlinu

$
0
0

Systurnar Díana Sjöfn og Sólrún Ösp Jóhannsdætur fluttu heim á æskuheimilið á síðasta ári eftir að móðir þeirra, Gunnhildur, lést eftir skammvinna baráttu við krabbamein. Æskuheimilið er snoturt, raðhúsi í Smáíbúðahverfinu þar sem þær systur búa ásamt föður sínum og eiginmanni Sólrúnar, hinum danska Jeppe.Díana og Sólrún hafa kynnst leigumarkaðnum af eigin raun og búið á ýmsum stöðum.

Betra í Danmörku

„Við fjölskyldan höfum talað um það að okkur finnst gott að búa nálægt hvert öðru en hvernig eigum við að finna íbúðir nálægt hvort öðru?“ Segir Sólrún, enda er ástandið á leigumarkaðnum snúið og erfitt að vera með tilteknar kröfur, sérstaklega ef maður er háskólanemi, eins og Díana og Sólrún. Sólrún bjó um tíma í Danmörku, en að hennar mati er kerfið í Danmörku mun betra. Hún fékk greitt fyrir að vera í skóla og hafði örugga leiguíbúð á vegum borgarinnar. Þar hafði eiginmaður hennar nefnilega verið á biðlista yfir leiguíbúð frá fæðingu í úthverfi Kaupmannahafnar. „Foreldrar hans hefðu samt alveg mátt setja hann á lista í Kaupmannahöfn,’’ segir Sólrún og þær systur flissa kátar.

Sparar fyrir íbúð

„Það hefur verið gott að vera hérna heima árið eftir að mamma deyr. Nú höfum við náð að vera meira saman,’’ segir Díana og Sólrún tekur í sama streng. „Mamma var kletturinn í fjölskyldunni þannig það er svolítið öðruvísi að búa hérna núna. En þetta er líka hluti af sorgarferlinu að fara í hluti sem hún gerði á hverjum degi. Mér finnst mjög gott að vera hérna núna.“Díana flutti að heiman haustið 2015 og leigði með vinkonum sínum. Hún er nú á biðlista fyrir íbúð á Stúdentagörðunum en einstaklingsíbúðir þær kosta frá tæpum 80 þúsundum upp í rúm 91 þúsund. „Það er náttúrlega ógeðslega erfitt fyrir mig að vera á leigumarkaðnum, ein og einhleyp. Þannig ég ákvað að spara og vera heima, en ég veit samt ekki fyrir hverju ég er að spara. Ég held alltaf að ég sé að spara fyrir íbúð, en er maður að ná að spara fyrir íbúð einn?“ veltir hún fyrir sér.

32407 Fullordin 02809

Vilja litlar leiguíbúðir 

Systurnar eru sammála um að bjóða ætti upp á betri lausnir fyrir ungt fólk, enda vilji ungt fólk síður búa í stórum íbúðum eða einbýlishúsum. Tengdaforeldrar Sólrúnar í Danmörku búa t.d. í leigufyrirkomulagi þar sem þau hafa öruggan búseturétt og hafa búið í sama húsnæðinu í 25 ár.

„Ég er mjög hrifin af svona pælingum. Þau eru svolítið öðruvísi heldur en foreldrar mínir sem vildu eignast hús og bíl og voru í staðin ekkert mikið að ferðast. Foreldrar Jeppe vildu ferðast og fóru með fjölskylduna út um allt,“ segir Sólrún. „Maður vill samt hafa þetta öryggi að maður sé ekki að fara að missa leiguíbúðirnar,’’ segir Díana. Þær ætla þó að vera um tíma áfram á æskuheimilinu, enda finnst þeim gott að búa saman, deila bíl og eru búnar að skipuleggja frí í Belgíu í maí.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652