Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ástæðulaust að henda gömlum matarhefðum burt fyrir kleinuhringi og bollakökur

$
0
0

„Það er mikil vakning í fiskinum,“ segja hjónin Guðmundur Viðarsson matreiðslumaður og Mjöll Daníelsdóttir sem reka Kaffivagninn úti á Granda.

Þau tóku við rekstri Kaffivagnsins árið 2013 og hafa getið sér gott orð fyrir hlýlega stemningu og sígilda íslenska matargerð. Þar er fiskurinn í aðalhlutverki.

„Þetta er klassískt hjá okkur, hér er ekkert verið að finna upp hjólið. Við reynum að halda okkur í þessum hefðbundna mat; rauðsprettu, ýsu, fiskibollum og saltfiski. Svo erum við líka alltaf með rétti dagsins og spilum það svolítið eftir veðrinu og stemningu hvað er á boðstólum hverju sinni. Það getur verið steikt ýsa með lauksmjöri eða grillaður lax með humarsósu,“ segja þau.

Guðmundur segir að þessi klassíska nálgun, þessi gamla íslenska stemningin höfði greinilega til fólks í dag.
„Þegar ég kom að þessu fyrir fjórum árum fannst mér virkilega vanta eitthvað svona í veitingahúsaflóruna í bænum. Það vantaði stað þar sem hægt væri að panta venjulegan mat, það þurfti ekki froður eða tíu tegundir af meðlæti á diskinn.“

Mjöll Daníelsdóttir stendur vaktina á Kaffivagninum úti á Granda ásamt bónda sínum, Guðmundi Viðarssyni matreiðslumanni. Einn af vinsælustu réttum staðarins eru fiskibollurnar. Mynd/Heiða Helgadóttir
Mjöll Daníelsdóttir stendur vaktina á Kaffivagninum úti á Granda ásamt bónda sínum, Guðmundi Viðarssyni matreiðslumanni. Einn af vinsælustu réttum staðarins eru fiskibollurnar. Mynd/Heiða Helgadóttir

Hvaða fólk kemur til ykkar?
„Það er bara þverskurðurinn af íslensku þjóðfélagi. Ég held að Jónas Kristjánsson hafi orðað þetta ágætlega í vetur þegar hann skrifaði um okkur. Hann sagði að hjá okkur væru allt frá leigubílstjórum upp í ráðherra og allt þar á milli. Þetta hefur mælst hrikalega vel fyrir,“ segir Guðmundur.

Kaffivagninn er vitaskuld á besta stað í bænum og útsýnið yfir höfnina á fallegum dögum er óborganlegt. Það er því ekki að undra að erlendir ferðamenn hafa tekið staðnum opnum örmum og þegar síðast var að gáð var hann með fimmtu hæstu einkunnina af veitingastöðum í Reykjavík á Tripadvisor.

32636-05

„Það sem skapar þetta er salurinn og staðsetningin, allt sem er í kringum þetta. Þetta er lítið sætt veitingahús. En það er ekki nóg því þú þarft að vera með matinn í lagi og bjóða upp á eitthvað sem fólk fær ekki allsstaðar annars staðar. Þetta hefur steinlegið hjá túristum,“ segja Mjöll og Guðmundur.

Hverju eru ferðamennirnir hrifnastir af?
„Þeir eru mikið í fiskisúpunni og fiski og frönskum. En ef fólk er ekki fyrir fisk þá erum við líka með smurbrauð og samlokur, kaffi og með því.“

Þið haldið enn í gömlu stemninguna…
„Jájá. Hér er enn hægt að fá kaffi og kleinu með því eða rjómapönnuköku. Þetta er bara það sem við vorum alin upp með. Það er verið að reyna að halda í þær matarhefðir og láta þær njóta sín. Það er engin ástæða til að henda því burtu fyrir donuts og cup cakes. Það er svona hugmyndafræðin á bakvið þennan stað; að vera trú gamla tímanum en uppfæra líka með því að bera fram í pönnum og á fallegum diskum.

Kokkarnir á Kaffivagninum. Frá vinstri eru Þráinn Júlíusson, Guðmundur Viðarsson og Stefán Stefánsson.
Kokkarnir á Kaffivagninum. Frá vinstri eru Þráinn Júlíusson, Guðmundur Viðarsson og Stefán Stefánsson.

Þið hafið verið lengi í fiskinum, rákuð veiðihús til margra ára, ekki satt?
„Jú, við rákum veiðihúsið við Norðurá í yfir 20 ár og eins komum við að Hítará, Langá og Laxá í Dölum. Þannig að þetta er eiginlega í blóðinu að elda og umgangast fisk.“

Er íslenski fiskurinn besta hráefnið?
„Algjörlega. Þú finnur ekki betra hráefni. Hér er ekki átt við neitt. Þetta er ekki eins og kjúklingur sem búið er að sprautusalta til andskotans, eða þegar búið er að þyngja kjöt með því að setja í það allskonar efni. Þú færð ekki hollara hráefni en fiskinn og það skilar sér á diskinn,“ segir Guðmundur.
32636-04

Steiktar fiskibollur með lauksmjöri og remúlaði

Fyrir fjóra

Einn af vinsælustu réttunum á matseðli Kaffivagnsins eru klassískar fiskibollur. Mjöll og Guðmundur gefa okkur hér uppskriftina að þessari dásemd. „Þessar eru algjörlega geggjaðar,“ segir Mjöll.

Hráefni

Ýsuhakk 1 kg
Laukur 100 g
4 stk. egg
200 g hveiti
250 ml rjómi
250 ml mjólk
Salt/pipar

Aðferð

Allt sett í hrærivélarskál og hrært saman þar til deigið er orðið silkimjúkt.
Steiking
Bollurnar eru steiktar á pönnu með smjöri og matarolíu þar til þær eru orðnar gullinbrúnar.
Borið fram með kartöflusmælki, lauksmjöri og remúlaði.

32636-03

Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652