Skurðarbrettið ber nafnið Jafnbretti og minnir fólk á launamun kynjanna á áhugaverðan hátt. Launamunur kynjanna hafði verið hönnuði ofarlega í huga þegar hann var að búa til skurðarbrettið Jafnbretti, en nafnið er ákveðinn orðaleikur.
„Ég ákvað að túlka launamun kynjanna í þessu bretti þar sem hægt er að sjá línur og mælistikur og þá getur þú skorið brauð stærra eða minna eftir launamuninum,“ segir Snæbjörn. Þannig verður brettið eins og ákveðin mælistika. Brettið er ekki frumraun Snæbjörns í merkingarbærri hönnun, því árið 2009 hannaði hann jólaplatta sem var kallaður Neyslumynstur sem minnti fólk á það hegðunarmynstur sem ríkti í íslensku samfélagi fyrir hrun. Snæbjörn miðar við 20 prósent launamun kynjanna í brettinu en að mati hans skiptir í rauninni ekki máli hvort gengið er út frá 5 prósentum, 10 prósent eða 18 prósent launamun, svo framarlega sem þessi launamunur sé til staðar þá sé hann vandamál sem þarf að ræða. „Afhverju borga konur ekki bara lægri skatta því þær fá lægri laun. Afhverju fá þær ekki bara lægra verð, því þær þurfa að vinna fleiri tíma,’’ segir Snæbjörn. En Jafnbretti, sem er fáanlegt í búð Snæbjörns á Barónstíg kostar konur 20% minna heldur en karla.
↧
Jafnbretti stuðlar að jafnrétti
↧