Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Svarar ekki hvort hann telji við hæfi að hann starfi nú fyrir kröfuhafana

$
0
0
Benedikt Gíslason, ráðgjafi og stjórnarmaður í Kaupþingi ehf., segir að hann hafi fengið starfstilboð frá eignarhaldsfélaginu síðastliðið haust og að hann hafi þegið það. Hann vill ekki gefa upp hversu háa bónusa hann getur fengið ef eignarhaldsfélaginu gengur vel að selja eignir þess, meðal annars 57 prósenta hlut í Arion-banka sem félagið á, eftir að hafa selt tæplega 30 prósent hlut í vikunni. „Var boðið ráðgjafastarf fyrir Kaupþing síðastliðið haust og tók sæti í stjórn Kaupþings í lok nóvember í fyrra. Trúnaður gildir um samningssamband mitt við Kaupþing,“ segir í skriflegu svari frá Benedikt sem lét af ráðgjafastörfum fyrir ráðuneytið í júní í fyrra.
Eins og Fréttatíminn greindi frá á föstudaginn var Benedikt einn af aðalráðgjöfum síðustu ríkisstjórnar um losun gjaldeyrishaftanna og var hann um tíma aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar. Eitt af því sem fólst í vinnu Benedikts var að koma að gerð stöðugleikaskilyrða, reglna um hvernig kröfuhafar föllnu bankanna geta farið með hundruð milljarða króna eignir sínar frá Íslandi. Benedikt vinnur nú fyrir kröfuhafa Kaupþings sem eru stærstu eigendur Arion banka og er því að starfa fyrir þá aðila sem stöðugleikaskilyrðin voru meðal annars sniðin að. Til að kröfuhafar Kaupþings geti farið með fé sitt frá Íslandi þurfa þeir fyrst að greiða stöðugleikaframlag upp á rúmlega 80 milljarða króna í ríkissjóð og þeir ná í það fjármagn með sölu eigna, til dæmis Arion banka.
Þegar Fréttatíminn spyr Benedikt að því að hvort honum finnist það við hæfi að hann fari úr trúnaðarstarfi fyrir hið opinbera og til einkaaðila þar sem ríkið eigi í umfangsmiklum viðskiptum við þetta einkafyrirtæki segir hann. „Er ekki viss um að rétt sé að tala um fjárhagsleg samskipti Kaupþings og stjórnvalda sem viðskipti. Kaupþing er að inna af hendi greiðslur til ríkissjóðs vegna stöðugleikaframlaga sem eru í sjálfu sér ekkert ólíkar skattgreiðslum.“
Benedikt vill ekki svara þeirri spurningu með hvaða hætti honum var boðið ráðgjafastarfið hjá Kaupþingi, meðal annars hvort það hafi gerst vegna og í gegnum vinnu hans fyrir fjármálaráðuneytið.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652