Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Einmanaleikinn: Þurfum nærveru og meiri samkennd

$
0
0

Í Fréttatímanum í síðustu viku fjölluðum við um rannsóknir sem benda til þess að fólk er meira einmana og einangrað í dag en áður. Einmanaleikinn hellist yfir fólk af ólíkum ástæðum og fólk er misvel undirbúið til að takast á við hann. Hverskyns áföll, félagslegt umhverfi, einelti, veikindi og fötlun eru allt þættir sem geta ýtt undir einangrun. Verði einangrunin langvarandi getur hún leitt af sér svíðandi einmanaleika sem veldur ekki aðeins andlegri vanlíðan heldur einnig líkamlegri.

Helga Sigurjónsdóttir félagsráðgjafi og deildarstjóri hjá Þjónustumiðstöð Breiðholts segir fólk oft eiga erfitt með að viðurkenna að það sé einmana og hlutirnir því oft komnir í óefni þegar hefja eigi vinnu við vandann. „Það kemur hingað mjög mikið af fullorðnu fólki sem býr eitt og er innilokað og einmana. Þegar við heyrum af fólki sem hefur ekki farið út í marga mánuði þá förum við og bönkum upp á og bjóðum aðstoð okkar, en sumir vilja enga aðstoð. Margir hafa það ansi dapurt,“ segir Helga.

En það eru ekki bara fullorðnir sem eru einmana. Rannsóknir sýna að kvíði og þunglyndi er vaxandi vandamál á meðan íslenskra grunnskólabarna. Helga segir einmanaleika og félagsfælni að sama skapi hafa aukist, enda haldist þetta allt í hendur. Erfitt sé að henda reiður á hvað valdi þessari samfélagsbreytingu en ýmislegt komi til greina. Hennar persónulega skoðun er sú að það sé flóknara að vera ungur í dag. „Maður veltir því fyrir sér hvort aukið áreiti sem ungt fólk verður fyrir í dag sé hluti vandans. Fólk hefur minni tíma og mestur tími fer í samfélagsmiðla og netið þar sem unga fólkið samsamar sig við óraunhæfar fyrirmyndir. Mér finnst hraðinn vera meiri í dag og ég held að það skipti miklu máli að foreldrar fylgist vel með unglingnum sínum og að fjölskyldan eigi sér samverustundir. Bara það að borða kvöldmat saman er mikilvægt.“

„Maður sér að sumar fjölskyldur eru ekki saman jafnvel þó þær eyði tíma saman, hver og einn er í sínu horni með tækin sín. Það er minna um nærveru og samkennd. Og það er minna um að stórfjölskyldur hittist, að mínu mati. Við sjáum það klárlega að fólk er einangraðara en áður. Það er margur sem á hreinlega engan að. Ungt fólk sem hefur farið út af sporinu á oft á tíðum engan að. Það eru til dæmi um það að við hér séum þau einu sem fólk getur hallað sér að,“ segir Helga og tekur undir það að einmanaleikinn sé samfélagslegt tabú sem mörgum reynist erfitt að ræða. „Það er erfitt að tala um einmanaleikann því það er í eðli okkar að vilja líta vel út, út á við. Við erum oft búin að tala lengi við skjólstæðinga okkar áður en við áttum okkur á því að einmanaleikinn er helsta rót vandans. Þetta er mikið áhyggjuefni sem við þurfum klárlega að veita athygli.“

Sjá viðtöl um efnið:

32630_Olof_Eliasdottir-04Ólöf Elíasdóttir 

32637_Gudlaug-02Guðlaug Sæmundsdóttir

32548 Einmannaleikinn 03470Tryggvi, Georg og Björgvin

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652