Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Er verið að hafa okkur að fífli í viðskiptum samtímans?

$
0
0

„Við erum að horfa á mjög einkennilega bankasölu í dag, þar koma aflandsfélög við sögu eins og í þessum viðskiptum. Hvernig eru eftirlitsstofnanir að meta orðspor og hæfi eigenda og hvaða tæki hafa þau í höndunum. Er verið að hafa okkur að fífli í viðskiptum samtímans?“
Þetta segir Katrín Jakobsdóttir í samtali við Fréttatímann. Hún segir ekki hægt að draga aðra ályktun af lestri skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um einkavæðingu Búnaðarbankans en að stjórnvöld og almenningur hafi verið vísvitandi blekkt. Enginn hafi gætt almannahagsmuna, hvorki stjórnvöld né eftirlitsstofnanir. Það hafi aldrei verið sannreynt í raun og veru hver aðkoma þýska bankans Hauck & Aufhäuser var í raun og veru. „Fjármálaráðherra hefur nú boðað sölu á öllum hlut ríkisins í bönkunum nema litlum hlut í Landsbanka. Við verðum að tryggja að hér sé heilbrigt fjármálakerfi. Það er algerlega skýr krafa að hálfu okkar, að rannsókn á einkavæðingu bankanna ljúki áður en ríkisvaldið fer að hreyfa við hlutunum í bönkunum.“
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra sagðist, í umræðum á Alþingi um skýrsluna, vera þeirrar skoðunar að rannsaka eigi einkavæðingu bankanna fyrir hrun. Hann upplýsti þingheim að hann hefði sent Fjármálaeftirlitinu 11 spurningar sem vonandi yrðu til þess að upplýst yrði hverjir væru raunverulegir eigendur þeirra sjóða sem keyptu þrjátíu prósenta hlut í Arion-banka.

31202 Benedikt 05776

Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652