Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Risa trampólíngarður í Garðabæ

$
0
0

Það munu eflaust margir Íslendingar hoppa hæð sína af gleði við lestur þessarar greinar, enda verður hér sagt frá opnun risa trampólíngarðs í Garðabæ. Já, þið lásuð rétt. Trampólíngarður.

„Ég fór í svona garð fyrir tveimur árum og eftir það setti ég mig í samband við þá hjá Rush, sem eru stærstir í Bandaríkjunum í svona görðum. Ég fékk aðila frá fyrirtækinu til Íslands að skoða aðstæður og seldi honum þá hugmynd að opna hér í samstarfi við mig,“ segir Torfi Jóhannsson, framkvæmdastjóri trampólíngarðsins, Rush Ísland. En stefnt er á opnum garðsins í Suðurhrauni í Garðabæ seint í haust á þessu ári. Í lok þessa árs verða garðar á vegum Rush orðnir tíu talsins, víða um heim. En þeir eiga sér fimmtíu ára sögu í framleiðslu á trampólínum.

Um er að ræða 2000 fermetra sérhannaðan trampólínsal þar sem verður boðið upp ýmiskonar afþreyingu í tengslum við trampólín. Allt frá hefðbundinni afþreyingu fyrir börn upp í sérhæfðari skemmtun fyrir fullorðna og hópa. „Það kunna flestir að hoppa og allir hafa gaman af því að fá smá útrás. Þarna verða líka svampgryfjur, klifurveggir og stökkpallur. Svo verður hægt að keppa í „dodgeball“ á trampólíni sem er mjög sniðugt fyrir hópa.“

Að sögn Torfa verður tækjum skipt út á þriggja til sex mánaða fresti svo það ætti enginn að fá leið á neinu. „Við spilum ekki öllum trompunum út strax,“ segir Torfi sposkur. „En ég er viss um að þetta verður alveg magnað,“ bætir hann við.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um garðinn hér.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652