Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Íhuga mannréttindadómstól með staðgöngumæðrunarmál

$
0
0

Hæstiréttur staðfesti í vikunni dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli drengs sem fæddur var af staðgöngumóður í Bandaríkjunum árið 2013. Íslensku konurnar voru í hjúpskap þegar þær leituðu til stofnunar í Kaliforníu í Bandaríkjunum sem hafði milligöngu um að finna staðgöngumóður fyrir þær. Parið gerði samning við staðgöngumóðurina um að hún gengist undir tæknifrjóvgun og gengi með barn fyrir þær, þar sem sæði og egg var fengið úr nafnlausum gjöfum. Á bandarísku fæðingarvottorði eru konurnar skráðar mæður þess.

Eftir heimkomu til Íslands sendu konurnar Þjóðskrá beiðni um skráningu barnsins. Beiðninni var hafnað af Þjóðskrá en sú niðurstaða var kærð til innanríkisráðuneytisins. Ráðuneytið staðfesti niðurstöðu Þjóðskrár og synjaði barninu um ríkisborgararétt. Þóttu því mál barnsins óljós og konurnar tvær fengu að gera fósturforeldrasamning um það. Barninu var því skipaður lögráðamaður sem er sjálfstætt starfandi sálfræðingur sem barnaverndaryfirvöld í Garðabæ leituðu til. Með niðurstöðu Hæstaréttar er drengnum gert að vera fósturbarn til átján ára aldurs. Konurnar verða ekki viðurkenndar mæður þess og barnið ekki lögformlegur erfingi þeirra.

„Niðurstaða Hæstaréttar er mikil vonbrigði. Mér finnst ekki að neinu leyti hafa verið litið til hagsmuna barnsins. Ég hefði viljað að horft væri á málið út frá því hvað er drengnum fyrir bestu,“ segir Þyrí Steingrímsdóttir, lögmaður kvennanna. „Við íhugum að fara með málið til mannréttindadómstóls Evrópu en það er heilmikið ferli.“ Hún segir jafnframt að skipaður lögráðamaður barnsins sé hlynntur málaferlunum og telji barninu fyrir bestu að fá fjölskyldutengsl við konurnar viðurkennd.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652