Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Lára Bryndís í Hallgrímskirkju

$
0
0

Þrennir tónleikar verða í Hallgrímskirkju á Alþjóðlegu orgelsumri um helgina. Á morgun, laugardag, leikur Lára Bryndís Eggertsdóttir orgelleikari á hádegistónleikum ásamt GAIA kammerkórnum frá Árósum þar sem verk eftir Stefán Arason, Báru Grímsdóttur, Carl Nielsen og Rachmaninoff fá að hljóma. Á sunnudaginn, klukkan 17, flytur Lára Bryndís síðan metnaðarfulla og fjölbreytta efnisskrá eingöngu fyrir orgel. Þar á meðal spænska barokktónlist, umritanir á Vocalise eftir Rachmaninoff og Nótt á Nornagnípu eftir Mussorgsky, auk verka eftir Hafstein Þórólfsson og Hildigunni Rúnarsdóttur. Á mánudaginn, klukkan 20, heldur svo danski kammerkórinn GAIA tónleika undir stjórn Søren Kinch Hansen, en á efnisskrá kórsins má finna perlur úr Vesper eftir Rachmaninoff, Messu eftir Rautavaara auk verka eftir Purcell, Chilcott, Nielsen, Báru Grímsdóttur og Stefán Arason. Miðaverð á hádegistónleika Alþjóðlegs orgelsumars er 2000 krónur en á tónleikana á sunnudaginn, klukkan 17 og mánudaginn, klukkan 20, er aðgangseyrir 2500 krónur.

The post Lára Bryndís í Hallgrímskirkju appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652