Söngkonan Svala Björgvinsdóttir er á landinu ásamt hljómsveit sinni Steed Lord. Þau munu koma fram á Innipúkanum um helgina og á Gay Pride um næstu helgi. Seinna í mánuðinum mun Steed Lord koma fram á Gay Pride í Kaupmannahöfn. Meira mun sjást af Svölu á landinu á næstunni, því hún mun verða einn dómara í þættinum The Voice sem sýndur verður á Skjá 1 í vetur.
„Við komum til landsins í gær (miðvikudag) og verðum á Innipúkanum á laugardagskvöldið,“ segir Svala. „Við spiluðum síðast á Íslandi 2013 og erum því mjög kát með að vera komin heim. Svo verðum við á Arnarhóli á Gay Pride um næstu helgi og á Gay Pride ballinu í Iðnó um kvöldið svo það er nóg um að vera,“ segir hún. Steed Lord hefur verið starfrækt frá Los Angeles síðustu sex ár og hefur sveitin verið mjög iðinn við tónleikahald. Á síðasta ári spiluðu þau á Gay Pride í San Fransisco og í Palm Springs og fóru í tónleikaferð til Rússlands.
„Við erum mikið bókuð og fáum margar fyrirspurnir og reynum að taka það sem við getum,“ segir Svala. „Það er auðvitað smá mál að fara í gigg í Skandinavíu þegar maður er búsettur í Kaliforníu. Annars er það bara bókunarskrifstofan okkar sem sér um þetta og lætur þetta ganga upp Við erum nýbúin að semja við stærri skrifstofu sem kemur okkur á stærri viðburði. Það gengur mjög vel úti,“ segir hún. „Við erum að taka upp nýja plötu sem kemur út í vetur og vorum að klára lag með Sam Sparro, sem heitir Nightgames, og erum að gera myndaband við það núna í ágúst sem verður spennandi,“ segir Svala sem hefur ekki verið áberandi hér heima undanfarin sex ár sökum búsetu sinnar erlendis. Það er þó að fara að breytast.
„Ég verð dómari í The Voice í vetur og er mjög spennt fyrir því,“ segir hún. „Framleiðslufyrirtækið mun fljúga mér heim í nokkur skipti til þess að taka upp þættina, svo ég kem oftar í heimsókn í vetur. Það er alltaf gott að koma heim og The Voice eru skemmtilegir þættir,“ segir Svala Björgvins.
The post Svala dæmir í The Voice appeared first on FRÉTTATÍMINN.