Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Draumurinn deyr aldrei

$
0
0

Finnur Árnason, forstjóri Haga, á sér ýmis áhugamál. Hann nam píanóleik sem ungur maður en hætti eins og svo margir þegar annað nám tók yfir. Finnur hefur samt aldrei yfirgefið tónlistina og á dögunum kom út platan Rispur, sem hefur að geyma lög og texta Finns. Hann fékk einvalalið tónlistarfólks í þetta verkefni og segir tilfinninguna magnaða að fá plötuna í hendurnar.

„Ég lærði klassískan píanóleik þegar ég var ungur og var í tvo vetur á harmonikku líka en hætti þegar ég var 13 eða 14 ára,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga. „Ég byrjaði þó aftur á menntaskólaárunum og var í píanónámi þangað til að ég lauk háskólanámi, 25 ára gamall. Ég byrjaði aftur vegna þess að ég hafði komið mér í unglingahljómsveit og áttaði mig á því að ég ætti kannski að læra meira til þess að verða betri,“ segir hann.
„Eftir háskólanám tók annað við og síðan þá hef ég verið að dunda við þetta heima. Í kringum aldamótin hitti ég svo Pál Eyjólfsson, umboðsmann Bubba Morthens og hljómborðsleikara Papanna, og hann hvatti mig til þess að fara í stúdíó til þess að taka upp mín eigin lög. Það gerðist ekkert í því og tíminn bara leið, en það var mín sök,“ segir Finnur. „Fyrir fjórum árum varð ég svo fimmtugur og ég var búinn að ákveða að þetta mundi fara af stað á afmælisárinu, svo ég var byrjaður að undirbúa þetta fyrir þann tíma. Palli kynnti mig fyrir þeim Benzinbræðrum, Daða og Berki Birgissonum og ég var heppinn að kynnast þeim. Fyrir fjórum árum tókum við upp fyrsta grunninn,“ segir hann. „Þeir tóku mér eins og yngri bróður og ólu mig upp í þessum fræðum. Auk þeirra hafa Ingi Björn Ingason bassaleikari og Magnús Trygvason Eliassen trommuleikari fylgt mér í þessu ævintýri.“

Vínyll á leiðinni

Á plötunni Rispur eru lög og textar eftir Finn, að undanskildu einu lagi sem er eftir Bubba Morthens, en tveir textar á plötunni eru ljóð Árna Grétars Finnssonar, föður Finns. Finnur segir sumar lagahugmyndirnar vera yfir 20 ára gamlar. „Ég kom með fyrstu hugmyndirnar án texta og alls og Börkur og Daði hjálpuðu mér að útsetja þær,“ segir Finnur. „Svo þegar maður áttaði sig á því að þetta þyrftu að vera fleiri en þrjú eða fjögur lög þá þurfti maður að setja sig í gírinn og klára meira. Upphaflega áttu þetta bara að vera nokkur lög og ég vildi skoða hvort þetta gengi upp hjá mér. Draumurinn var samt að þetta yrði vínylplata og nú er hún á leiðinni til landsins,“ segir Finnur.
Hvernig var að skipta úr hlutverki forstjórans á daginn, í það að vinna sem tónlistarmaður í hljóðveri?
„Það var mjög gott,“ segir Finnur.
„Ég er með lítinn flygil heima. Þegar vinirnir voru á snjósleða var flygillinn minn snjósleði og nú er hann minn jógatími. Auðvitað var eitt sinn sá tími að maður gerði ekkert annað en að vinna og sinna barnauppeldi og heimilinu, en í dag þegar börnin eru að eldast er meiri tími fyrir áhugamálin. Þetta er slökun fyrir mig. Ég vann þetta á löngum tíma, svo þetta var ekki gert í einhverri törn.“

Ótrúleg tilfinning

„Þegar við vorum búin að þessu öllu saman þá var tilfinningin alveg ótrúleg,“ segir Finnur. „Maður var eiginlega eins og smákrakki að fá nýtt leikfang. Ég hefði ekki trúað því, þó ég vissi í hvað stefndi. Þetta var mjög skemmtilegt. Við kláruðum tvö síðustu lögin á þessu ári og það er ákveðið sköpunarstopp á meðan maður er að klára,“ segir hann. „Einhvernveginn er það samt þannig að mann langar að halda áfram. Lögin renna þó ekkert frá mér eins og mörgum lagahöfundum, ég þarf að hafa svolítið fyrir þessu,“ segir Finnur.
Á plötunni fær Finnur til liðs við sig stórsöngvarana Bubba Morthens, Kristjönu Stefánsdóttur, Helga Björnsson, Ragnheiði Gröndal og Pál Rósinkranz. Finnur segir það hafa verið stórkostlegt og gaman að kynnast því hvað þau voru mikið fagfólk í sínu starfi. Hann kallar hópinn sem stóð að plötunni, Árnason & Co.
„Það er alltaf smá ótti í manni hvort fólki finnist lögin boðleg, en ég bjó svo vel að dóttir mín, Ebba Katrín, var búin að syngja „demó“ upptökur af lögunum og ég var kominn með ákveðna mynd á þetta, sem þessir söngvarar fengu í hendurnar,“ segir Finnur. „Það var alveg frábært að fá þetta fólk, og þau nálguðust þetta af mikilli fagmennsku og tóku mér öll afskaplega vel,“ segir hann. „Það sem stendur upp úr í þessu öllu er hvað þau gáfu mikið af sér, og fyrir það er ég þakklátur.“
Áttu auðvelt með að semja lög?
„Ég get ekki sagt að ég eigi auðvelt með það,“ segir Finnur.
„Ég kemst í gegnum þetta með þrjósku. Þetta er þrjóskuverk og einhverjir segja að þeir þekki fáa jafn þrjóska og mig og það kom mér í gegnum þetta. Ég geri margar tilraunir og kemst einhvernveginn í mark.“

Semur þegar það dimmir

Finnur segir tónlistardrauminn aldrei deyja út. Það stóð þó aldrei til, á sínum tíma, að setja tónlistina í fyrsta sætið. „Nei ég hafði aldrei gaman af því að vera einn á sviði,“ segir hann. „Mér líður ekki vel í því hlutverki. Mesta kvölin á þessum námsárum mínum voru tónleikar í skólanum. Þó maður geti spilað verkin heima þá er ekkert sjálfgefið að maður geti það á tónleikum,“ segir Finnur. „Viðtökurnar hafa verið góðar við þessu uppátæki mínu og það er mikill skilningur á heimilinu fyrir þessu brölti. Eiginkonan og börnin fjögur hafa hvatt mig áfram,“ segir hann. „Ég er þó ekki búinn að semja nein ný lög eftir að platan kom út og það eru ákveðnir timburmenn eftir svona verkefni. Ég mun semja meira þegar sumarið klárast. Flest lögin fjalla um bjartar sumarnætur, en eru samin að vetri til svo ætli ég bíði ekki eftir að það fari að húma. Þá kemur þetta,“ segir Finnur.
Eru starfsmenn Haga ekkert að fá þig til þess að koma fram á skemmtunum innan fyrirtækisins.
„Nei, sem betur fer er ekki mikið um það,“ segir Finnur og hlær.
„Það sýna mér allir skilning innanhúss og ég er á því að stjórnendur eigi að passa sig á því að vera ekki alltaf í aðalhlutverki,“ segir hann. „Menn í atvinnulífinu hafa marga hæfileika utan vinnunnar og margir sem rækta þá. Vonandi er þetta ævintýri mitt bara hvatning til fólks að elta drauma sína, og gera eitthvað sem það hefur langað lengi til að gera,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga og hljómplötuútgefandi.

The post Draumurinn deyr aldrei appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652