Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

RÚV heldur prufur fyrir dagskrárgerðarfólk framtíðarinnar

$
0
0
RÚV heldur prufur fyrir dagskrárgerðarfólk framtíðarinnar

Laugardaginn 24. febrúar opnar RÚV dyr sínar fyrir fólki á aldrinum 18-30 ára sem hefur brennandi áhuga á dagskrárgerð. Þá verða haldnar prufur í hljóð- og myndveri fyrir framleiðslu þátta fyrir ungt fólk. Þau sem áhuga hafa eru hvött til að koma og láta ljós sitt skína og kasta fram hugmyndum að dagskrárefni sem þau vilja taka þátt í að láta verða að veruleika.  Þetta er í fyrsta sinn sem RÚV heldur svo umfangsmiklar prufur í dagskrárgerð fyrir þennan aldurshóp. Í stefnu RÚV til ársins 2021 er það yfirlýst markmið að auka efnisframboð og bæta þjónustu við ungt fólk. RÚV núll var sett á laggirnar á haustmánuðum til að standa við það markmið. Fjölga á ungu dagskrárgerðarfólki og þess er vænst að það finnist í prufunum á laugardaginn.

„Það verður alveg ótrúlega spennandi að sjá hvaða hæfileikabúnt við fáum í hús á laugardag,“ segir Snærós Sindradóttir, verkefnastjóri RÚV núll. „Með þessum prufum langar okkur að opna húsið og gefa ungu fólki tækifæri til að starfa við dagskrárgerð við hlið reynds fagfólks.“

Opnað hefur verið fyrir skráningu hér: https://goo.gl/forms/FeLI1OQhJm7x7Okg2 en frestur til að skrá sig er til fimmtudags 22. febrúar.

Allar frekari upplýsingar veitir Snærós, snaeros@ruv.is, s: 661-4411.

 

The post RÚV heldur prufur fyrir dagskrárgerðarfólk framtíðarinnar appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652