Sérsveit ríkislögreglustjóra hefur tekið bensínstöð N1 við Ægisíðu yfir sem aðgerðastöð vegna umfangsmikillar lögregluaðgerðar sem stendur yfir á svæðinu
Myndir: Fréttatíminn
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1, staðfestir þetta í samtali við Vísi áðan. Hann segist engar frekari upplýsingar hafa fengið um málið. Fréttamaður okkar er mættur á staðinn. – Fjöldi lögreglubíla er á vettvangi og loka tveir lögreglubílar fyrir alla umferð og standa lögreglumenn vörð á svæðinu.
Grunur leikur á að um vopnað fólk sé um að ræða á staðnum og er a.m.k. einn sérsveitarmaður er vopnaður riffli, tilbúinn að bregðast við.
Þrír starfsmenn eru á N1-stöðinni og hefur þeim verið bannað að fara út á meðan aðgerðinni stendur. Samkvæmt upplýsingum Vísis hefur því beint til starfsfólks Ægisborgar, leikskóla við Ægisíðu, um að börnin fari ekki út að óþörfu á meðan á aðgerðum stendur.
Grunur er um að einstaklingur eða einstaklingar séu vopnaðir skotvopnum á svæðinu.
Í frétt Vísis var einnig haft eftir nágranna að leigubíll hefði verið stöðvaður á Hagamel í tengslum við aðgerðina. Úr bílnum komu tveir farþegar og var annar þeirra illa farinn í andliti að sögn sjónarvottsins sem býr í götunni.
The post Sérsveitin er í aðgerðum við N1 á Ægissíðu – Starfsfólki haldið inni og á leikskóla í grennd appeared first on Fréttatíminn.is.