Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Þagnarmúr stjórnmálamanna um Kjararáð hefur rofnað – Styrmir Gunnarsson

$
0
0

Þagnarmúr stjórnmálamanna um Kjararáð hefur rofnað 

Styrmir Gunnarsson :  ,,Það hefur ekki farið fram hjá neinum að þingmenn hinna hefðbundnu stjórnmálaflokka hafa gert með sér óformlegt þagnarbandalag um Kjararáð, þ.e.a.s. um launahækkanir þeirra sjálfra.

En jafnframt er ljóst að nú síðustu daga í kjölfar úrslita í stjórnarkjöri Eflingar hefur sá þagnarmúr rofnað og augljóst að hann verður ekki endurreistur.

Það þýðir að annað hvort verður ríkisstjórnin að horfast í augu við erfiða stöðu núna eða standa frammi fyrir því að allt fari á annan endann á vinnumarkaði snemma á næsta ári.

Og rétt að benda forystumönnum stjórnarflokkanna á að líkurnar á því að stjórnarsamstarfið muni standast slík átök eru ekki miklar.

Vinstri grænir munu ekki hafa pólitískt bolmagn til þess að sitja áfram í ríkisstjórn með núverandi samstarfsflokkum við þær aðstæður.

Bakland flokksins mundi ekki sætta sig við það. Þess vegna mun framtíð þessa stjórnarsamstarfs ráðast af aðgerðum eða aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar næstu mánuði.
Það þýðir ekki að bíða fram á næsta ár.“ segir Styrmir Gunnarsson um Kjararáð og þá ólgu sem hefur skapast í samfélaginu s.b.r. hallarbyltinguna í Eflingu og ólguna innan ASÍ.

Eldri fréttir vegna Kjararáðs:

Guðni Th. Jóhannesson afþakkar hækkun Kjararáðs – Biskup lagðist á bæn um hækkun

Úrskurðir kjararáðs teknir til skoðunar

 

The post Þagnarmúr stjórnmálamanna um Kjararáð hefur rofnað – Styrmir Gunnarsson appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652