Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Veiðisafnið á Stokkseyri – Byssusýningin 2018

$
0
0

Veiðisafnið á Stokkseyri – Byssusýningin 2018

Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri sem í ár verður í samvinnu við Gallery Byssur/Byssusmiðju Agnars verður haldin laugardaginn 17. Og sunnudaginn 18. mars 2018 frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri.Gallery Byssur/Byssusmiðju Agnars sýnir úrval skotvopna og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði, til sýnis og sölu.

Fjölbreytt úrval skotvopna verður til sýnis, haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu tengdu skotveiðum m.a úr einkasöfnum. Kynntar verða byssur frá BROWNING, WINCHESTER og fl. einnig sjónaukar frá MINOX ásamt skotum frá EXPRESS.

Sýningartilboð verður á byssum og skotum. Sérstakir gestir sýningarinnar eru félagar úr Skotíþróttafélag Suðurlands – SFS og munu félagsmenn sýna byssur í eigu félagsmanna SFS og kynna félagið sem og aðstöðu SFS.

Ný stjórn SKOTVÍS verður á staðnum með kynningu. Til sýnis eru líka skotvopn og munir frá Sverri Scheving Thorsteinssyni, Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá, Sveini Einarssyni frv.veiðistjóra, Sigmari B. Haukssyni og Drífu-haglabyssur frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík svo eitthvað sé nefnt.

Allt áhugafólk um skotvopn og veiðar er velkomið, aðgangseyrir er kr.1500.- fl. og 750 kr. börn 6-12 ára.

Nánari upplýsingar má sjá: www.veidisafnid.is

The post Veiðisafnið á Stokkseyri – Byssusýningin 2018 appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652