Vinstri græn tapa fylgi, Viðreisn eykur við sig og stuðningur við ríkisstjórnina minnkar
Heilt yfir eru litlar breytingar á fylgi flokka milli mánaða en fylgi Vinstri grænna minnkar um nær þrjú prósentustig og fylgi Viðreisnar eykst um tæplega tvö prósentustig.
Nær 14% segjast myndu kjósa Vinstri græn færu kosningar til Alþingis fram í dag og rösklega 8% segjast myndu kjósa Viðreisn.
Litlar breytingar eru á fylgi annarra flokka eða á bilinu 0,1 – 1,1 prósentustig.
Rösklega 24% segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn, ríflega 16% Samfylkinguna, tæplega 13% Pírata, rúmlega 9% Framsóknarflokkinn, nær 9% Miðflokkinn, um 5% Flokk fólksins og rösklega 1% aðra flokka.
Tæplega 9% taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og ríflega 6% svarenda segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag.
Fylgi við ríkisstjórnina minnkar um tæplega 4 prósentustig milli mánaða, en rúmlega 60% þeirra sem taka afstöðu segjast styðja ríkisstjórnina.
Spurt var: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa? En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu? Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna? Styður þú ríkisstjórnina?
The post Vinstri græn tapa fylgi. Viðreisn eykur við sig og stuðningur við ríkisstjórnina minnkar appeared first on Fréttatíminn.is.