Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Atvinnurekendur og „óraunhæfar væntingar“ launþega

$
0
0

Atvinnurekendur og „óraunhæfar væntingar“ launþega

Mánudagur, 2. apríl 2018 –   Styrmir Gunnarsson f.v. ritstjóri Morgunblaðsins

Hinn 22. marz sl. fylgdi Morgunblaðinu sérblað um Iðnþing 2018, þar sem m.a. birtist athyglisvert viðtal við Andra Þór Guðmundsson, forstjóra Ölgerðarinnar, þar sem hann lýsir rekstrarumhverfi einkafyrirtækja á Íslandi og segir m.a.:

„Við bætast síðan óraunhæfar væntingar fulltrúa launþega í kjarasamnings-viðræðunum framundan, sem sprengja væntanlega alla ramma og kveða á um hækkanir, sem engar forsendur eru fyrir. Væri fátt annað mögulegt en að velta miklum launahækkunum út í verðlagið og værum við þá komin aftur í þetta ástand, þar sem launahækkun og verðbólga eiga í stöðugu höfrungahlaupi.“

Þetta er rétt hjá forstjóra Ölgerðarinnar og hann lýsir nákvæmlega því, sem mun gerast á næstu misserum að óbreyttu.

Að þessu sinni er hins vegar ekki við verkalýðshreyfinguna að sakast og veikleikinn í málflutningi atvinnurekenda og talsmanna þeirra er sá að þeir veigra sér augljóslega við að segja opinberlega það, sem þeir viðurkenna og staðfesta í einkasamtölum,            að ástæðan fyrir þessum „óraunhæfu væntingum“ verkalýðsfélaganna eru launahækkanir, sem Kjararáð hefur úthlutað til æðstu embættismanna, þingmanna og ráðherra svo og áþekkum launahækkunum, sem stjórnendur stærstu fyrirtækja landsins hafa fengið ýmist í formi beinna hækkana eða með bónusgreiðslum með þegjandi samþykki lífeyrissjóðanna.

Vilji atvinnurekendur leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir þá þróun, sem forstjóri Ölgerðarinnar lýsir verða þeir að horfast í augu við þennan veruleika.

The post Atvinnurekendur og „óraunhæfar væntingar“ launþega appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652