Fréttatíminn kom á staðinn á sama tíma og lögreglan og á undan slökkviliði, erum nú búin að vinna fréttina en eldurinn kom upp í húsi Icewear og Geymslum í Garðabæ
Mikill reykjastrókur kom skyndilega upp og sást hann alla leið frá Reykjanesbraut og haft var samband við Fréttatímann vegna þessa en þá var eldurinn rétt að byrja. Ljóst er að mikið af verðmætum, jafnvel aleigur fólks eru í mikilli hættu í húsinu sem að nú er að brenna en eldveggur er á milli Icewear og húsnæðis Geymslna sem að geymir ýmis verðmæti fyrir fólk og jafnvel heilu búslóðirnar. Fólk bíður í ofvæni með að sjá hvernig slökkvistarfið gengur og vonar hið besta á meðan.
Blaðamaður Fréttatímans brást snarlega við og var næsti bíll við lögreglu á staðinn og það blasti við að mikill reykur steig upp frá húsakynnum Icewear og Geymslum í Garðabæ. Erum að vinna í að setja inn myndir og myndbönd af vettvavangi en ljóst er að hér er um að ræða tjón upp á hundruði milljóna.
Mikill reykjastrókur kom skyndilega upp og sást hann alla leið frá Reykjanesbraut u.þ.b. korteri seinna sáust eldtungur upp úr þaki hússins
Svart reykjarský er yfir öllum Garðabæ og reykurinn liggur í átt að Álftanesi og betra að fólk loki gluggum heima hjá sér.
The post Stórbruni í Garðabæ – Icewear og Geymslur alelda appeared first on Fréttatíminn.is.