Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Um 200 fiskar komnir úr Vatnamótunum

$
0
0

Um 200 fiskar komnir úr Vatnamótunum

Gunnar Bender birti viðtal nú í morgun á Veiðipressunni við veiðimann sem var að veiðum í Vatnamótunum sem eru rétt austan við Kirkjubæjarklaustur

,,Við erum vorum að byrja eftir hádegi í dag og fengum 63 fiska,  sá stærsti var 90 cm,“ sagði Ólafur Guðmundsson sjóbirtingsbani,  þegar við heyrum í honum Vatnamótin  fyrir neðan Kirkjubæjarklaustur, núna í kvöld, nýhættur að veiða eftir góða veiði.

,,Já, þetta gekk og þetta var gaman. Flott veður hérna  er svolítið kalt,“ sagði Ólafur ennfremur.

Vatnamótin hafa gefið næstum 200 fiska síðan svæðið opnaði fyrsta apríl sem er frábær veiði.  Það er alveg óhætt að segja sjóbirtingsveiðin byrjar vel, fiskurinn er í tökustuði.“ sagði Ólafur í samtali við Gunnar Bender á Veiðipressunni.

Mynd. Sá stóri sem var 90 cm og veiddist í dag. Mynd Ólafur

The post Um 200 fiskar komnir úr Vatnamótunum appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652