Mikill fjöldi hefur verið í miðbænum í dag vegna hátíðahalda í tilefni þess að hundrað ár eru liðin síðan konur fengu kosningarétt á Íslandi.
Hátíðardagskrá hófst klukkan 16 á Austurvelli en þar talaði Vigdís Finnbogadóttir af svölum Alþingishússins. Þá flutti Léttsveit Reykjavíkur lag og ljóð sem samin voru af þessu tilefni.
Fyrr í dag lagði Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, blómsveig frá Reykvíkingum að leiði Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í Hólavallakirkjugarði.
The post Þúsundir kvenna fögnuðu kosningarétti í miðbænum appeared first on FRÉTTATÍMINN.