Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Strokufang­inn Sindri Þór Sig­fús­son var hand­tek­inn í Amster­dam

$
0
0

Strokufang­inn Sindri Þór Sig­fús­son var hand­tek­inn í miðborg Amster­dam í Hollandi í dag

Sindri strauk úr fang­els­inu á Sogni aðfar­arnótt þriðju­dags og komst með flugi til Svíþjóðar morg­un­inn eft­ir. Hann var um það bil að lenda í Svíþjóð þegar að það uppgvötvaðist að hann var horf­inn úr her­bergi sínu á Sogini, þar sem að hann hafi kom­ist út um glugga óséður og fékk far með leigubíl á Keflavíkurflugvöll.

Talið var að Sindri hefði farið til Spánar, vegna þess að hann á hús þar og var alþjóðleg hand­töku­skip­un gef­in út á hend­ur honum og vega­bréf hans var gert ógilt skv. frásögn Ólafs Helga Kjartanssonar lögreglustjóra.

Eldra:

Uppfært: Sindri Þór Stefánsson, sem strauk af Sogni í nótt, fór úr landi á fölsuðum skilríkjum í morgun.

RÚV greinir frá þessu og vitnar í Ólaf Helga Kjartansson, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Sindri er sagður hafa komist af landi brott um svipað leyti og lögreglan fékk tilkynningu um flótta hans úr fangelsinu um klukkan átta í morgun.
Ólafur Helgi vill ekki veita upplýsingar um hvert Sindri fór en heimildir RÚV herma að hann hafi farið til Evrópu.

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Sindra Þór Stefánssyni en hann strauk frá fangelsinu að Sogni nótt kl.01.00

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að Sindri hafi sætt gæsluvarðhaldi frá 2. febrúar s.l. vegna rannsóknar lögreglunnar á umfangsmiklum þjófnaði á tölvubúnaði.

„Sindri er í þróttamannslega vaxinn með skolleitt hár, skegghýung og er 192 cm á hæð.  Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum strauk Sindri frá Sogni kl. 01:00. Allir þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Sindra frá því kl. 01:00 í nótt eru beðnir um að koma þeim upplýsingum á framfæri við Lögregluna.“

The post Strokufang­inn Sindri Þór Sig­fús­son var hand­tek­inn í Amster­dam appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652