Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

,,Það er dapurt að sjá tortryggninga í hverju horni“

$
0
0

Það er dapurt að sjá tortryggninga í hverju horni, en um leið skiljanlegt. Við þekkjum ekkert annað en smjaður og fölsk fyrirheit stjórnmálamanna. Hvers vegna skyldi þá allt í einu vera eitthvað annað í boði?

Þess vegna vil ég einungis segja ykkur að það er í boði einlægni og hugsjón núna. Ég er spurð um það hvort ég hafi lagt fram hina og þessa fyrirspurnina. Vil því segja ykkur einungis þetta.                             

Inga Sæland, þingmaður Flokks fólksins

,,Við höfum gert miklu, miklu meira en að leggja fram fyrirspurnir, við höfum lagt fram frumvörp. Vonandi áttið þið ykkur þó á því að við erum í stjornarandstöðu enn sem komið er þannig að það er ekki okkar vilji sem fær brautargengi hjá ríkisstjórninni.

Við erum t.d nú að fá út úr nefndum „vonandi“ tvö mál, annars vegar afnám á skerðingar vegna launatekna aldraðra, hins vegar afnám á skerðingum vegna styrkveitinga til kaupa á hjálpartækjum fyrir aldraða og öryrkja.

Þessir styrkir eru skattlagðir í botn sem hreinar tekjur og skerða auk þess almanatryggingar til öryrkja krónu á móti krónu.  Við erum að vona að þetta réttlætismál sé þess eðlis að jafnvel kaldlyndustu stjórnmálamenn geti ekki annað en séð það og samþykkt. Við erum einnig með þingsáliktunartillögu þar sem við krefjumst þess að enginn fái lægri framfærslu en 300 þúsund kr. á mánuði skattfrjálst. Öll okkar mál eru fyrir okkur öryrkja, aldraða og alla þá sem búa hér í fátækt.

Ég vildi óska þess að þið hvettuð okkur frekar til dáða en að láta ítrekað líta út fyrir að við séum ekkert annað en hugsjónalausar afætur sem gleymum tilgangi okkar þegar markmiðinu var náð að komast á þing.

Þetta sem ég hef nú talið upp fyrir ykkur er einungis hluti af því sem við erum að vinna við. Kjörorð Flokks fólksins er FÓLKIÐ FYRST ! Við höfum engu gleymt.“ Segir Inga Sæland.

Íslenska ríkið sýknað í héraðsdómi vegna skerðinga lífeyrissjóðsgreiðslna

The post ,,Það er dapurt að sjá tortryggninga í hverju horni“ appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652