Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Sektir og önnur viðurlög fyrir umferðarlagabrot

$
0
0

Sektir og önnur viðurlög fyrir umferðarlagabrot

Sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðherra hef­ur skrifað und­ir nýja reglu­gerð um sekt­ir og önn­ur viður­lög fyr­ir um­ferðarlaga­brot sem tek­ur gildi 1. maí.

Sektir fyrir umferðarlagabrot hafa margar hverjar verið óbreyttar í rúman áratug og mörgum þótt þær of lágar og hafa lítinn fælingarmátt. Sekt­ir við um­ferðarlaga­brot­um eru til þess falln­ar að veita öku­mönn­um aukið aðhald og stuðla þannig að auknu um­ferðarör­yggi. Nauðsyn­legt er að fjár­hæð sekta end­ur­spegli al­var­leika um­ferðarlaga­brota og þá hættu sem þau skapa. Flestar sektir hækka og margar þrefalt eða fjórfalt á við það sem þær eru núna.

Lægsta sektar­fjár­hæð frá 1. maí verður 20.000 krón­ur en var áður 5.000 krón­ur (eina und­an­tekn­ing­in er að sekt fyr­ir að hafa ekki öku­skír­teini meðferðis sem verður 10.000 krón­ur). Hæstu sektirnar hækka líka, þó að hlutfallslega sé hækkunin ekki eins mikil.

Hér á  vef Samgöngustofu verður hægt að fá allar upplýsingar um sektir fyrir umferðarlagabrot.   Sektarreiknirinn verður uppfærður þar sem notendur geta valið sér skilyrði og fengið út hver refsingin kemur til með að verða fyrir hraðakstur og ölvunarakstur.

Hér má sjá nokkur dæmi um hækkun sekta fyrir umferðarlagabrot frá 1. maí 2018:

The post Sektir og önnur viðurlög fyrir umferðarlagabrot appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652