Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ljósmæður segja samningsdrög algjörlega óásættanleg – Heilbrigðisráðuneytið neitar meira fjármagni

$
0
0

Sjálfstætt starfandi ljósmæður segja samningsdrög algjörlega óásættanleg en þar leggi heilbrigðisráðuneytið til skerðingu við þjónustu við sængurkonur til að unnt sé að hækka laun ljósmæðra og voru skilaboðin sú að ekki yrði sett meira fjármagn í þessa þjónustu

Sjálfstætt starfandi ljósmæður í heimaþjónustu funduðu nú í kvöld. Lögð voru fram samningsdrög sem unnin voru á fundi Sjúkratrygginga Íslands og fulltrúa ljósmæðra í dag.

Niðurstaða fundarins var sú að drögin væru algjörlega óásættanleg en þar leggur heilbrigðisráðuneytið til skerðingu við þjónustu við sængurkonur til að unnt sé að hækka laun ljósmæðra og voru skilaboðin sú að ekki yrði sett meira fjármagn í þessa þjónustu.

Sem málsvarar kvenna og nýfæddra barna þeirra geta ljósmæður ekki sætt sig við að þjónustan sé skert á þennan hátt og ekki sé unnt að tryggja öryggi þeirra á fyrstu sólahringum eftir fæðingu með þessu móti.

Heimaþjónusta ljósmæðra er í lykilhlutverki til að tryggja heilsu nýfæddra barna og að koma í veg fyrir innlagnir á fyrstu dögum ævinnar.

Samningur við ljósmæður í hnút og engin lausn í sjónmáli

The post Ljósmæður segja samningsdrög algjörlega óásættanleg – Heilbrigðisráðuneytið neitar meira fjármagni appeared first on Fréttatíminn.is.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652