Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Flokkarnir kunna ekki að nota hina nýju samskiptamiðla

$
0
0

Flokkarnir kunna ekki að nota hina nýju samskiptamiðla

Hinir hefðbundnu stjórnmálaflokkar á Íslandi kunna ekki að notfæra sér hina nýju samskiptamiðla. Almennir borgarar vita ekki hvað er að gerast í kosningabaráttunni. Hún er nánast ósýnileg, það sem af er.

Sjálfstæðisflokkurinn er að vísu duglegur við að segja frá því á Facebook dag hvern hvað er að gerast í kosningastarfi í Valhöll en auðvitað ætti með sama hætti að segja daglega frá því, hvar frambjóðendur eru á ferð þann daginn og hvað þeir eru að segja.

Það er löngu liðin tíð að hefðbundnir fjölmiðlar sjái um slíkt fyrir flokkana, enda fer þeim fækkandi.

Heimasíðum flokkanna er lítið sinnt að þessu leyti, sem er furðulegt. Í raun þurfa flokkar nú orðið að ráða til tímabundinna starfa 1-2 blaðamenn síðustu mánuði fyrir kosningar til þess að sinna þessum verkefnum.

Donald Trump hefur sýnt með daglegu tísti sínu hvað hægt er að ná miklum áhrifum með notkun á Twitter. Hann hefur náð eins konar dagskrárvaldi yfir bandarískum fjölmiðlum. Pólitískar fréttir þeirra snúast dag hvern um Trump (og eru þess vegna orðnar ólesandi!) ekki sízt vegna notkunar hans á Twitter.

Flokkarnir ættu að hugleiða þetta og sjá hvort þeir geti ekki gert betur í næstu umferð.

Segir Styrmir Gunnarsson, f.v. Ritstjóri Morgunblaðsins í færslu dagsins.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652