Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ársreikningur Reykjavíkurborgar samþykktur

$
0
0

Seinni umræða um ársreikning Reykjavíkurborgar fyrir árið 2017 fór fram í borgarstjórn Reykjavíkur í dag. Ársreikningurinn var samþykktur en útkoma hans er mjög jákvæð fyrir Reykjavíkurborg þar sem samstæða borgarinnar skilaði 28 milljarða hagnaði

Súlurit sem sýnir rekstur Reykjavíkurborgar í tölum frá 1998 til 2017.

Rekstur samstæðu Reykjavíkurborgar gekk afar vel í fyrra. Samstæða borgarinnar var rekin með 28 milljarða hagnaði, en í henni eru B-hluta fyrirtæki eins og Orkuveita Reykjavíkur og Félagsbústaðir. A-hluti borgarinnar sem heldur utan um eiginlegan rekstur borgarinnar skilaði fimm milljarða afgangi.

Skuldir samstæðunnar hafa farið lækkandi mörg ár.

Skuldahlutfall samstæðunnar án skulda Orkuveitu Reykjavíkur er 83% sem er vel innan þeirra viðmiða sem sett eru um skuldir sveitarfélaga.

Samkvæmt árlegri greinargerð fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar með ársreikningi er fjárhagsleg staða borgarinnar sterk.

Sala lóða og fasteigna í borginni var talsvert umfram áætlanir í fyrra  sem styrkir fjárhag borgarinnar umtalsvert og ber þess merki hversu miklar framkvæmdir eru í Reykjavík þessi misserin.

Reykjavíkurborg – lykiltölur úr rekstri A-hluta

Tekjur: 116 milljarðar króna

Gjöld: 107 milljarðar króna

EBITDA: 9,2 milljarðar króna

Eigið fé: 85,5 milljarðar króna

Veltufé frá rekstri: 9,2 milljarðar króna

Íbúafjöldi: 126.109


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652