Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Bæjarstjórar með hærri laun en borgarstjóri og forsætisráðherra

$
0
0

Laun bæjarstjóranna í Kópavogi og í Garðabæ eru hærri en laun borgarstjóra og forsætisráðherra

Forsætisráðherra furðaði sig á því í gær hve há laun bæjarstjórans í Kópavogi eru, komið hefur í ljós að bæjarstjórinn í Garðabæ er með u.þ.b. jafn há laun.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, fær rétt rúmar 2 milljónir króna í laun og greiðslur á mánuði sem borgarstjóri í Reykjavík. Laun Bæjarstjóranna t.d. í Kópavogi og svo í Garðabæ eru mun hærri en laun bæði borgarstjórans í Reykjavík og forsætisráðherra landsins. En við fjölluðum í gær um laun bæjarstjórans í Kópavogi sem að nema um 2,5 milljónum á mánuði. Um sömu laun bæjarstjóra er um að ræða í Garðabæ eða um áttföld lágmarkslaun. Kom fram í gær hjá fosætisráðherra að um sé að ræða u.þ.b. 300.000 kr. hærri laun en hún hefur.

Laun og hlunnindi bæjarstjóra Garðabæjar eru um 30 milljónir króna eða u.þ.b. 2,5 milljónum króna á mánuði. Grunnlaun bæjarstjórans hafa á kjörtímabilinu hækkað um tæpa hálfa milljón á mánuði.

Á síðasta ári fékk Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, 27,5 milljónir króna, eða u.þ.b. 2,3 milljónir króna á mánuði sem bæjarstjóri. Gunnar fékk auk þess 507.000 krónur á mánuði sem varamaður í bæjarstjórn Garðabæjar.

Að viðbættum bifreiðastyrk að fjárhæð 2.200.000 kr. til bæjarstjóra, en Garðabær útvegar bæjarstjóra Land Cruiser-jeppa.
Þá námu allar greiðslur til bæjarstjórans um 30,200,000 krónum í árslaun skv. ofangreindu

 

Forsætisráðherra furðar sig á háum launum bæjarstjórans í Kópavogi

 

Mánaðarlaun Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra í Kópavogi, hækka í 2.5 milljónir króna


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652