Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ölvunar- og fíkniefnaakstur í Reykjavík í nótt

$
0
0

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt og er hér stiklað á nokkrum atriðum er varða afskipti lögreglunnar af fólki í nótt. Áberandi er hve margir ökumenn voru á ferli í vímu af völdum áfengis og fíkniefna.

Klukkan 21:35 Bifreið stöðvuð í austurborginni (hverfi 108) en ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá reyndist ökumaður aldrei hafa tekið ökupróf. Um klukkustund síðar eða kl. 22:31 var bifreið stöðvuð í Skeifunni en ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá er ökumaðurinn grunaður um vörslu fíkniefna.

Höfð voru afskipti af einstakling í miðbænum en hann er grunaður um vörslu fíkniefna og kl. 00:40 var bifreið stöðvuð í miðborginni en ökumaður reyndist sviptur ökuréttindum. Bifreið var svo stöðvuð í austurborginni (hverfi 108) klukkustund síðar en ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá reyndist ökumaður sviptur ökuréttindum vegna fyrri afskipta lögreglu.

Klukkan  04:02 í nótt var svo bifreið stöðvuð í miðbænum en ökumaður er grunaður um að hafa ekið gegn rauðu ljósi. Í viðræðum við ökumann vaknaði grunur um að hann væri undir áhrifum áfengis og blés hann yfir mörkum og var hann handtekinn í kjölfarið. Ökumaðurinn var laus úr haldi lögreglu að lokinni blóðsýnatöku.

Bifreið var einnig stöðvuð á sama tíma í austurborginni (hverfi 105) en ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þá eru ökumaður og farþegar í bifreiðinni grunaðir um vörslu fíkniefna.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652