Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Maður á þrítugsaldri tók niður íslenska fánan og dró erlendan að húni

$
0
0

Maður á þrítugsaldri tók niður íslenska fánann og dró erlendan að húni – Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð 

Íslenskur karlmaður um þrítugt var handtekinn á þaki Stjórnarráðsins við Lækjargötu í Reykjavík á tólfta tímanum í morgun, en hann hafði tekið þar niður íslenska fánann og dregið upp annan þjóðfána.

Maðurinn, sem var handtekinn mótþróalaust, var færður á lögreglustöð og bíður nú yfirheyrslu.  Skv. lögum um íslenska þjóðfánann og virðingarleysi gagnvart honum liggja þungar sektir og jafnvel fangelsisdómur í sumum tilvikum.  Skv. 12. grein laga um íslenska þjóðfánann er kveðið á um að enginn megi óvirða þjóðfánann, hvorki í orði né verki og að  brotið geti varðað sektum eða fangelsi allt að einu ári.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652