Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fíkniefni fundust við húsleit

$
0
0

Fíkniefni fundust við húsleit

Ökumaður á þrítugsaldri sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í nótt vegna gruns um fíkniefnaakstur reyndist hafa ýmislegt fleira á samviskunni.

Í kjölfar viðræðna lögreglu við ökumanninn var ákveðið að fara í húsleit á heimili viðkomandi að fenginni heimild.

Þar fundust meint fíkniefni, amfetamín, kókaín, svo og sterar á víð og dreif í húsnæðinu. Einnig hnífur og loftbyssa.

Kannabisræktun stöðvuð

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði einnig nýverið stórfellda kannabisframleiðslu sem átti sér stað í heimahúsi í Sandgerði. Lögreglumenn í hefðbundnu eftirliti urðu varir við megna kannabislykt og þegar betur var að gáð stóð yfir umfangsmikil kannabisræktun í húsinu.

Lagði lögregla hald á vel á annað hundrað kannabisplöntur, græðlinga, fjármuni sem og skotvopn. Tveir menn hafa verið handteknir og yfirheyrðir vegna málsins sem er í rannsókn.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaus til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652