Ástin svífur yfir vötnum á heimavist Listaskólans. Fjórtán til átján ára nemendur Óperuakademíu unga fólksins túlka lífið á vistinni með söng og leik. Nemendurnir, sem allir eru í söngnámi, hafa sótt sumarnámskeið Óperuakademíu unga fólksins í Hörpu undir leiðsögn Elsu Waage, Antoniu Hevesi og Jóhanns Smára Sævarssonar, sem segir hópinn afar efnilegan. Harpa Jónsdóttir annast stjórn Óperuakademíunnar. Sýningin er afrakstur námskeiðsins.
„Óperuakademían er hugmynd sem vaknaði hjá nokkrum aðilum sem koma að íslensku óperunni og foreldrum barna sem hafa verið í barnakór óperunnar,“ segir Jóhann Smári Sævarsson sem er einn leiðbeinenda Óperuakademíunnar. „Þarna eru krakkar sem falla fyrir þessu listformi en eru á þeim aldri að þau eru ekki gjaldgeng í óperukórinn eða í það að syngja einsöng, en eru of gömul til þess að vera ennþá í barnakórum. Þau eru öll komin af stað í söngnám og dreymir um að fara út í þetta af fullri alvöru,“ segir hann. „Við erum búin að vera með þrískipt námskeið fyrir þau. Þau fara í söngtíma hjá Elsu Waage, og óperuþjálfun hjá Antoniu Hevesi sem er aðal píanóleikari óperunnar. Svo koma þau til mín í leiklist,“ segir Jóhann. „Þau læra öll eina aríu, einn dúett og smá samsöng. Núna er ég að leikstýra þeim, setja saman það sem þau hafa lært og gera eina sýningu. Tónlistin er úr öllum áttum og við tökum atriðin og innihald textanna og röðum þessu saman,“ segir hann. „Harpa Jónsdóttir er foreldri í hópnum og hún skrifaði handrit þar sem hún færir þetta í eina heild og söguþráðurinn er um krakka sem eru í heimavist í listaháskóla. Ég reyndi svo að leikstýra þannig að færa aríurnar í stílinn. Dúett úr Don Giovanni er til dæmis færður í þessa sögu, þó svo að Don Giovanni sjálfur komi ekkert við sögu,“ segir Jóhann. „Krakkarnir eru á aldrinum 14 til 19 ára og þetta er að verða að mjög skemmtilegri sýningu. Þetta er fyrsta árið okkar og er að ganga það vel að ég efast ekki um að við munum halda þessu áfram, þó ekki sé alveg vitað í hvað formi það verður. Krakkarnir eru að læra mjög mikið og geta ekki beðið eftir því að koma fram í Hörpu á laugardaginn. Þetta er mikið ævintýri,“ segir Jóhann Smári Sævarsson hjá Óperuakademíunni. Sýningin Alls konar ást er flutt í Norðurljósasal Hörpu á Menningarnótt kl 17.30.
The post Söngvarar framtíðarinnar appeared first on FRÉTTATÍMINN.