Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Vinnuhópur um framtíð Grímseyjar

$
0
0

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í gær, að tillögu forsætisráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að settur verði á laggirnar vinnuhópur þvert á ráðuneyti sem skoði stöðu Grímseyjar í samvinnu við aðgerðahóp á vegum Akureyrarbæjar. „Það er brýnt að bregðast við þeirri erfiðu stöðu sem uppi hefur verði í Grímsey síðustu ár. Heimamenn óttast að ef ekkert verður að gert þá leggist útgerð í Grímsey af og jafnvel búseta í framhaldi þess. Ég trúi því ekki að nokkur vilji láta það gerast,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Vinnuhópurinn skal ljúka störfum eigi síðar en 1. nóvember 2015.

The post Vinnuhópur um framtíð Grímseyjar appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652