Í síðustu viku slösuðust tuttugu vegfarendur í níu umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu. Tímasetningar, aðdragandi og orsakir slysanna sem urðu vikuna 23. – 29. september.
Tvö umferðarslys voru tilkynnt mánudaginn 24. september. Kl. 8.19 var bifreið ekið norður Vesturlandsveg og aftan á kyrrstæða bifreið við gatnamót að Tindum.
Við áreksturinn kastaðist sú bifreið aftan aðra kyrrstæða bifreið framundan. Ökumaður fyrstnefndu bifreiðarinnar, sem hafði verið eitthvað annars hugar áður en óhappið varð, var fluttur á slysadeild. Og kl. 16.33 varð gangandi vegfarandi fyrir vespu, sem ekið var um gangstéttina framan við verslanir við Bæjarlind 1-3. Hann ætlaði sjálfur að leita sér læknisaðhlynningar í framhaldinu.
Tvö umferðarslys voru tilkynnt þriðjudaginn 25. september. Kl. 7.44 varð aftanákeyrsla á Vesturlandsvegi við hringtorg Álafossvegar. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild. Og kl. 16.48 varð þriggja bifreiða aftanákeyrsla á Höfðabakkabrú. Tveir ökumenn og tveir farþegar voru fluttir á slysadeild.
Tvö umferðarslys voru tilkynnt miðvikudaginn 26. september. Kl. 14.47 var bifreið ekið vestur Vesturlandsveg og aftan á kyrrstæða lögreglubifreið utan vegar skammt vestan Bláfjallavegar. Fimm voru fluttir á slysadeild. Ökumaður bifreiðarinnar mun hafa sofnað undir stýri skömmu áður en óhappið varð. Og kl. 16.01 varð þriggja bifreiða aftanákeyrsla á Bústaðavegi austan Kringlumýrarbrautar á leið til vesturs. Þrennt var flutt á slysadeild.
Tvö umferðarslys voru tilkynnt fimmtudaginn 27. september. Kl. 8.36 var bifreið ekið austur Breiðholtsbraut og aftan á aðra bifreið vestan Vatnsveituvegar.
Ökumaður aftari bifreiðarinnar var eitthvað annars hugar áður en óhappið varð. Báðir ökumennirnir ætluðu að leita sér aðhlynninga lækna í framhaldinu. Og kl. 15.28 varð aftanákeyrsla á Miklubraut við Kringlumýrarbraut. Báðir ökumennirnir fóru á slysadeild.
Föstudaginn 28. september kl. 19.02 varð árekstur með bifreið, sem var ekið austur Kalkofnsveg og beygt norður Faxagötu, og bifreið, sem var ekið vestur Kalkofnsveg. Farþegi í fyrrnefndu bifreiðinni var fluttur á slysadeild.
Enn sem fyrr er ástæða til að vekja athygli allra vegfaranda á mikilvægi þess að fara ávallt varlega í umferðinni. Það á ekki síst við um ökumenn – hvort sem um er að ræða bifreiða eða reiðhjóla.
Þá voru brot 84 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík frá þriðjudeginum 2. október til miðvikudagsins 3. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í austurátt, á gatnamótum við Njarðargötu.
Á einum sólarhring fóru 7.005 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.
Brot 57 ökumanna voru mynduð á Höfðabakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Höfðabakka í suðurátt, á móts við Árbæjarsafn. Á einni klukkstund, eftir hádegi, fóru 813 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.
Vöktun lögreglunnar á Höfðabakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.