Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Yfir 600 þátttakendur á kaupstefnunni frá 30 löndum 

$
0
0

Yfir 600 þátttakendur á kaupstefnunni frá 30 löndum                          Eliza Reid forsetafrú heiðursgestur 

Ferðakaupstefnan Vestnorden Travel Mart hófst í gær en hún er einn stærsti viðburður í ferðaþjónustu sem haldinn er á Íslandi. Kaupstefnan er haldin af Ferðamálasamtökum NorðurAtlantshafsins (NATA), sem er samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála. Eliza Reid, forsetafrú og sendiherra ferðamála hjá Sameinuðu þjóðunum setti kaupstefnuna.

Á kaupstefnunni eru yfir 600 þátttakendur frá 30 löndum, þar af 70 nýir erlendir ferðasöluaðilar. Samankomin eru öll helstu ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi, auk ferðaþjónustuaðila frá Grænlandi og Færeyjum, sem kynna vöruframboð sitt fyrir öðrum ferðasöluaðilum á staðnum. Kaupstefnan býður því upp á frábært tækifæri til að kynna Ísland sem áfangastað þá tvo daga sem hún stendur yfir.


Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu, segir: „Það er gott að vera hér á Norðurlandi með ferðakaupstefnuna í ár og það er hugur í öllum þátttakendum. Hér eru ferðaþjónustuaðilar hvaðanæva úr heiminum sem selja ferðir eða hafa hug á því að hefja sölu, að kynnast löndunum þremur og því sem þau hafa upp á að bjóða. Verðmæt viðskiptasambönd verða til og önnur styrkjast. Vestnorden er svo sannarlega mikilvægur vettvangur til þess að efla ferðaþjónustuna á öllum sviðum og viðhalda því sem er. Það er líka frábært að sjá hvernig ferðaþjónustan hér á Norðurlandi hefur tekið höndum saman í þessu verkefni og unnið með okkur að því að gera kaupstefnuna sem árangursríkasta.“


Í ár gafst þátttakendum í fyrsta sinn kostur á að fara í skoðunarferð hluta úr degi á meðan kaupstefnan stóð yfir. Í þeim gafst þátttakendum einstakt tækifæri á að ræða mögulegt samstarf við nýja viðskiptafélaga, á meðan Norðurland er kannað. Ferðakaupstefnan er haldin í góðu samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands, Akureyrarbæ, Isavia og Air Iceland Connect.

Áherslur kaupstefnunnar í ár eru sjálfbærni og ábyrg ferðahegðun og því verður „The Icelandic Pledge“ áberandi á sýningunni. Þar eru ferðamenn hvattir til að samþykkja atriði sem stuðla að ábyrgri ferðahegðun, svo sem að bera virðingu fyrir náttúrunni, að keyra ekki utan vega, eða koma sér ekki í hættulegar aðstæður við að taka myndir. www.inspiredbyiceland.com/icelandicpledge/


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652