Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Bjarg íbúðafélag hefur byggingu á 33 nýjum leiguíbúðum, u.þ.b. 700 íbúðir af 1.400 eru í vinnslu – Leiguverð frá 96.000 kr. fyrir íbúð

Fyrsta skóflustungan að 33 nýjum leiguíbúðum sem Bjarg íbúðafélag byggir var tekin í dag klukkan 10 við Asparskóga 12, 14 og 16 á Akranesi

Bjarg stefnir á að byggja um 1.400 leiguíbúðir á næstu fjórum árum og er félagið nú með tæplega 238 íbúðir í byggingu og um 430 í hönnunarferli. Stefnt er á að fyrstu íbúðir verði afhentar um mitt ár 2019.

Reiknað er með að afhending til leigutaka á Akranesi, verði í tvennu lagi, 1. júní og 1. júlí 2019. Þá hefur verið gert samkomulag við Akraneskaupstað um að þeir fái til ráðstöfunar 25% íbúðanna að Asparskógum.

Modulus munu sjá um byggingu húsanna og arkitekt er Svava Björg Jónsdóttir.

Hagsýni, skynsemi og gæði eru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna til að halda leiguverði lágu og er þar m.a. horft til fermetrafjölda. Um verður að ræða 40,4 fermetra stúdíóíbúðir, 52 fermetra tveggja herbergja íbúðir, 77 fermetra þriggja herbergja íbúðir og 93 fermetra fjögurra herbergja íbúðir.

Félagið er nú þegar með tæplega 238 íbúðir í byggingu og um 430 í hönnunarferli en þegar hafa verið veitt framlög til Bjargs vegna uppbyggingar á 668 íbúðum í Reykjavík, Hafnarfirði, Akranesi, Akureyri, Þorlákshöfn og Sandgerði. Þá hefur Bjarg átt í viðræðum við fleiri sveitarfélög um uppbyggingu en félagið stefnir á uppbyggingu um 1400 leiguíbúða á næstu fjórum árum.

Bjargi er ætlað að skapa tekjulægri hópum öruggt og gott húsnæði. Íbúðirnar í Asparskógum verða því afar mikilvæg viðbót inn á húsnæðismarkaðinn á Akranesi.

Opið er fyrir umsóknir og skráningu á biðlista hjá Bjargi á heimasíðu félagsins, www.bjargibudafelag.is

Framkvæmdir hafnar

  • Móavegur 2-12, Grafarvogi 155 íbúðir. Fyrsta skóflustunga var tekin í febrúar 2018. Afhending fyrstu íbúða áætluð 1. júlí 2019.
  • Urðarbrunnur 130-132 og 33, Úlfarársdal, 83 íbúðir. Fyrsta skóflustunga var tekin í apríl 2018. Afhending fyrstu íbúða áætluð 1. september 2019.

Framkvæmdir í undirbúningi

  • Akranes, 33 íbúðir að Asparskógum 12, 14 og 16. Upphaf framkvæmda áætlað í september 2018 og afhending íbúða 1. júní og 1. júlí 2019.
  • Hallgerðargata, við Kirkjusand, í Reykjavík. 80 íbúðir. Í undirbúningi.
  • Leirtjörn, Úlfarársdal í Reykjavík. 82 íbúðir. Í undirbúningi.
  • Bryggjuhverfi, Reykjavík. 29 íbúðir. Í undirbúningi.
  • Vogabyggð, Gelgjutanga, Reykjavík. 75 íbúðir. Í undirbúningi.
  • Hraunbær, Árbæ, Reykjavík. 92 íbúðir. Í undirbúningi.
  • Skerjafjörður, Reykjavík. 100 íbúðir. Í undirbúningi.
  • Akureyri, 26 íbúðir (í Guðmanns­haga 2). Í undirbúningi.
  • Sandgerði, 5 íbúðir (sunnan Sandgerðisvegar). Í undirbúningi.
  • Þorlákshöfn, 11 íbúðir (við Sambyggð). Í undirbúningi.
  • Selfoss, 44 íbúðir (í Björk). Í undirbúningi.

Bjarg er húsnæðis sjálfseignastofnun, stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða leiguheimili að norrænni fyrirmynd sem standa munu til boða þeim félagsmönnum aðildarfélaga ASÍ og BSRB sem hafa verið fullgildir félagsmenn s.l. 24 mánuði miðað við úthlutun og eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652