Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Banaslys í Hafnarfirði

$
0
0

Karlmaður lést í hörðum árekstri jepplings og fólksbíls á Reykjanesbraut, á móts við Vallahverfið í Hafnarfirði, snemma í morgun.

Lögreglunni barst tilkynning um slysið klukkan 5.44, en bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt.

Hinn látni var farþegi í öðrum bílnum, en hann var fluttur á Landspítalann og úrskurðaður látinn við komuna þangað.

Báðir ökumennirnir voru sömuleiðis fluttir á slysadeild, en talið er að þeir séu ekki alvarlega slasaðir.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka slysið.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652