
Brynja-hússjóður tekur ekki við umsóknum frá og með deginum í dag. 600 umsækjendur eru á biðlista. Mynd: Brynja-hússjóður
Brynja – hússjóður: Taka ekki við nýjum umsóknum
Vegna gríðarlegrar fjölgunar umsókna hjá Brynju – Hússjóði ÖBÍ er því miður ekki unnt að taka við nýjum umsóknum. Nú er svo komið að 600 umsækjendur eru á biðlista eftir leiguíbúðum og útilokað að nýjar umsóknir gætu komið til afgreiðslu á næstu árum.
Með móttöku nýrra umsókna væri einungis verið að viðhalda óraunhæfum væntingum og beina athygli frá því neyðarástandi sem uppi er í húsnæðismálum öryrkja.
Stjórn Brynju Hússjóðs þykir miður hvernig komið er og væntir þess að stjórnvöld bregðist við af þeirri ábyrgð sem þeim ber.