Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Hraðakstur á Sæbraut

$
0
0

Hraðakstur á Sæbraut í Reykjavík

Brot 80 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 29. október til þriðjudagsins 30. október. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg.

Á einum sólarhring fóru 7.603 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 103.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652