Tvær manneskjur létust í brunanum á Selfossi
Tvær manneskjur létust í brunanum sem varð á Kirkjuvegi á Selfossi í gær. Þetta staðfestir Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, í samtali við DV áðan. Mikill eldur kom upp í húsinu eins og greint var frá síðdegis í gær og gekk slökkvistarf hægt.
Karl og kona voru handtekin en ekki var hægt að yfirheyra þau í gærkvöldi.
Húsið sem brann er gamalt, hæð og ris og einangrað með frauðplasti að hluta. Í tilkynningu frá lögreglu í gærkvöldi kom fram að talið væri að karlmaður og kona sem voru á efri hæðinni þegar bruninn kom upp hefðu látist. Það hefur nú verið staðfest, að sögn Péturs nú áðan.
Vettvangurinn var formlega afhentur lögreglu og lögregla og tæknideild lögreglu eru að hefja vinnu við rannsókn.