Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Límonaði sló í gegn hjá landanum í sumar

$
0
0

Hinn gamalkunni drykkur Límonaði er nú uppseldur hjá Ölgerðinni, mánuði áður en áætlanir gerðu ráð fyrir, þrátt fyrir að framleiðslan hafi verið tvöfölduð að sögn Sigurðar Vals Sigurðssonar vörumerkjastjóra hjá Ölgerðinni. Drykkurinn var settur aftur á markað eftir þrjátíu ára hlé og óhætt er að segja að viðtökurnar hafi verið jákvæðar.

Limonadi-05-2015-blaut

„Stefnan var að hafa vöruna í hillum verslana frá miðjum maí fram í miðjan september. Strax í byrjun júní sáum við svo að viðtökurnar voru framar öllum vonum og ljóst var að Límonaðið myndi seljast upp fyrir lok júní. Hafist var handa við að útvega aðföng til að auka framleiðsluna. Í byrjun júlí var hægt að hefja framleiðsluna á ný en þá var varan búin að vera uppseld í um það bil tvær vikur. Salan dalaði ekkert eftir því sem leið á sumarið og þegar verslunarmannahelgarsalan var gerð upp kom í ljós að við vorum búin að selja tvöfalt það magn en upphaflega hafði verið áætlað,“ segir Sigurður.

Þrátt fyrir góðar viðtökur stendur ekki til að halda framleiðslu áfram í vetur. Límonaði verður sumarvara. „Egils Límonaði mætir aftur til leiks næsta vor og það er aldrei að vita nema við reynum að vera eitthvað fyrr á ferðinni. Núna skoðum við í rólegheitum hvort það sé tilefni til að fara í frekari vöruþróun með Límonaðið sem slíkt. Við erum jú alltaf að leita leiða til að styrkja og efla Egils vörulínuna sem hefur verið í mikilli sókn uppá síðkastið. Fyrir utan Límonaðið ber þar hæst Egils Grape sem hefur verið að ná áður óséðum árangri, sykurlaust Appelsín sem einnig er í stórsókn, að ógleymdu Egils Malti og Appelsíni sem standa alltaf fyrir sýnu líkt og undanfarna áratugi.”

Skilti

The post Límonaði sló í gegn hjá landanum í sumar appeared first on FRÉTTATÍMINN.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652