Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

TF-SIF hefur fundið rúmlega 900 flóttamenn á Miðjarðarhafi

$
0
0

Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, flaug í byrjun mánaðar til Malaga á Spáni til að sinna landamæraeftirliti á Miðjarðarhafi fyrir Landamæra og strandgæslustofnun Evrópu, Frontex.

TF-SIF hefur fundið rúmlega 900 flóttamenn á Miðjarðarhafi í október

Það má með sanni segja að áhöfn vélarinnar hafi haft í nógu að snúast en það sem af er mánuði hefur vélin fundið rúmlega 900 flóttamenn í eftirlitsflugum sínum. Það er svo í höndum spænskra yfirvalda að koma flóttafólkinu í öruggt skjól og fara með málefni þess. Að auki eru bátarnir færðir til hafnar og smyglararnir handteknir ef þeir finnast.

25. oktober var óvenju annasamur dagur hjá áhöfninni á TF-SIF en þá fundust alls 17 bátar með um 300 manns innanborðs. Landhelgisgæslan er afar stolt af því að vera hluti af þessu öfluga verkefni enda um mikilvægt framlag Íslands til leitar- og björgunarstarfa á ytri landamærum Evrópu. Jafnframt hafa verkefnin við Miðjarðarhaf sýnt hve öflug og vel búin TF-SIF er til slíkra starfa við krefjandi aðstæður.

Samkvæmt Frontex komu þriðjungi færri flóttamenn til Evrópu í september miðað við sama tíma í fyrra en komur flótta- og farandfólks til Spánar hafa á sama tíma fjórfaldast.
Meðfylgjandi myndband er frá aðgerðunum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652