Sjö fengu tæpan hálfan milljarð
Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld sem var 12,4 milljarðar en sjö miðaeigendur skiptu með sér 2. vinningi og hlýtur hver þeirra rúmar 427 milljónir króna í vinning. Miðarnir voru keyptir í eftirtöldum löndum; Danmörku, Noregi, Spáni, Finnlandi og þrír í Þýskalandi. Fimmtán skiptu með sér 3. vinningi og fá þeir 10,7 milljónir hver, þeir miðar voru keyptir í eftirtöldum löndum; Finnlandi, Ungverjalandi, Króatíu, Danmörku, tveir í Noregi og níu í Þýskalandi