Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

,,Út með hagnaðardrifin leigufélög”

$
0
0

Mikið hefur verið rætt um húsnæðismál nú í aðdraganda kjarasamninga og er það krafa launþegahreyfinga að tekið verði á bæði háum leigufjárhæðum og svo vöxtum og verðtryggingu hjá þeim sem eiga húsnæði. Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar um málið og bendir á vandann í húsnæðismálum og lausnir.

HEIMAVELLIR ERU VANDINN, EKKI LAUSNIN

,,Frá því að Heimavellir voru stofnaðir í febrúar 2015 hefur leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 40 prósent (sjá umfjöllun Kjarnans) og nú hyggst borgin gefa þessu hagnaðardrifna leigufélagi enn frekari aðgang að húsnæðisneyðinni, sem grafið hefur undan lífskjörum þeirra borgarbúa sem búa við veikust kjör. Í stað þess að byggja fyrir fólkið sem er í mestri neyð leitar Reykjavíkurborg enn og aftur til markaðsfyrirtækja, og einkavæðir þannig húsnæðiskreppuna enn frekar.

Markaðsvæðing húsnæðisstefnunnar á undanförnum árum hefur skapað dýpstu húsnæðiskreppu sem við höfum séð frá stríðslokum. Hið ömurlega ástand í húsnæðismálum er afleiðing markaðslausna og upplausnar hins félagslega húsnæðiskerfis á nýfrjálshyggjutímanum. Þessar lausnir geta því ekki verið lausn á vandanum, vanda sem varð til vegna markaðsvæðingar húsnæðisstefnunnar. Meirihlutinn í Reykjavík neitar að horfast í augu við þetta, heldur virðist hafa sokkið svo djúpt í fen nýfrjálshyggjunnar, ratar ekki að landi og hefur ekki dug til að viðurkenna hrun nýfrjálshyggjunnar.

Rétt viðbrögð væru að láta Reykjavíkurborg hefjast þegar handa við uppbyggingu félagslegra íbúða, sjálfa eða í samstarfi við verkalýðsfélögin. Í stað þess að taka höndum saman við verkalýðshreyfinguna, sem hefur beðið Reykjavíkurborg um samstarf, snýr meirihlutinn sér að Heimavöllum, einum helsta geranda húsnæðiskreppunnar í borginni. Þessi ákvörðun sýnir að meirihlutinn í borginni velur frekar að þjóna leigufélögum og húsnæðisbröskurum en að starfa með samtökum almennings. Sósíalistar í borgarstjórn fordæma þessa ákvörðun og heita því að berjast gegn henni.

Auðvitað er lausn á húsnæðisvanda Reykvíkinga ekki sú að borgin styðji enn frekar þau fyrirtæki sem grafið hafa undan húsnæðisöryggi í borginni. Markaðurinn er ekki lausnin, markaðurinn er vandinn.

Lausnin er:

1. Út með hagnaðardrifin leigufélög. Þrátt fyrir að þau megi ekki hækka leiguna, samkvæmt samningi, er Reykjavík með þessu að styðja við áframhaldandi drottnun leigufélaganna á markaði.

2. Félagslegt húsnæði! Við eigum ekki að vera hrædd við hugtakið félagslegt húsnæði og átta okkur á að húsnæðisöryggi hinna Norðurlandanna er að miklu leyti byggt upp á félagslegu húsnæði. Borgin á að byggja sjálf og styðja almennilega við uppbyggingu á vegum verkalýðsfélaga og annarra félagasamtaka, þar með talið samvinnufélaga.

3. Sveitarfélögin þurfa útsvar af fjármagnstekjum til þess að geta byggt upp sterka innviði og jafnt og sanngjarnt samfélag.

Öruggt húsnæði á viðráðanlegu verði eru mannréttindi og grundvöllur heilbrigðs samfélags, það er algjörlega ólýðandi að fjárhagslega sterkir aðilar geti hagnast á neyð fólks. Það er ekki hægt að byggja upp samfélag með fyrirtækjum sem hafa það að meginmarkmiði að hagnast á húsnæðisvanda fólks. Lausn húsnæðiskreppunnar felst ekki í því að leyfa hagnaðardrifnum leigufélögum að fá aukið aðgengi að húsnæðiskreppunni, heldur á þvert á móti að útiloka þá og aðra gamma frá húsnæðismarkaðinum. Reykjavíkurborg á að greiða fyrir áformum verkalýðsfélaga og samvinnufélaga og stofna sitt eigið byggingafélag að sænskri fyrirmynd, eins og sósíalistar í borginni munu leggja til.” Segir Sanna Magdalena Mörtudóttir.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652