Einn var fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri úr brennandi húsi
Klukkan 13:34 í dag fékk fengu slökkvilið og lögregla á Akureyri tilkynningu um að reyk lægi út um glugga á húsi við Strandgötu 45 á Akureyri og væri grunur um að eldur logaði þar innan dyra. Í ljós kom að þarna hafði eldur kviknaði í íbúð á 3ju hæð en húsið er 3 hæðir og ris.
Fljótlega eftir að lögregla og slökkvilið komu á staðinn fékkst staðfest að allir íbúar hússins væru komnir út en talið er að 3 aðilar hafi verið inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Einn aðili var fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar en mögulegt var talið að hann hefði orðið fyrir reykeitrun.
Nú um 2 klukkustundum eftir að tilkynning barst er enn verið að vinna að niðurlögum eldsins sem náð hefur upp í þak hússins. Frekari upplýsingar verða veittar þegar þær liggja fyrir.