Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Karlmaður í gæsluvarðhaldi eftir að hafa stungið konu með hnífi

$
0
0

Karlmaður í gæsluvarðhaldi eftir að hafa stungið konu með hnífi

Karlmaður fæddur 1959 var í morgun úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Suðurlands til fimmtudagsins 8. nóvember kl. 18:00 vegna rannsóknar á líkamsárás sem átti sér stað í heimahúsi í Þorlákshöfn s.l. sunnudag.

Maðurinn er talinn hafa veitt konu á fimmtugsaldri stunguáverka á kvið með hnífi. Konan var flutt af vettvangi á sjúkrahús, með sjúkrabifreið, þar sem hún dvelur enn en er ekki talin í lífshættu.

Báðir aðilar eru af erlendu bergi brotnir en hafa verið búsettir hér og unnið um lengri tíma. Frekari upplýsingar um málið er ekki unnt að veita að sinni.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652