,,Erlendis væri fjármálaráðherra með þessa fortíð löngu farinn frá og ítarleg rannsókn sett í gang”
Jóhanna Sigurðardóttir lýsir furðu sinni á því að Katrín Jakobsdóttir sjái ekkert athugavert við að Bjarni Benediktsson sitji í stóli fjármálaráðherra eftir að Stundin hafi upplýst um að 130 milljarða kr. afskriftir honum tengdum og fyrirtækin öll gjaldþrota eða hafa verið yfirtekin af kröfuhöfum.
,,Það er með ólíkindum hvað fjölmiðlar hafa lítið fjallað um frétt Stundarinnar eftir að lögbanni var aflétt um fjármál og virkan þátt Bjarna Benediktssonar í að stýra eða koma að fjárfestingum fjölskyldu sinnar upp á 130 milljarða kr.
Öll fyrirtækin eru gjaldþrota eða hafa verið yfirtekin af kröfuhöfum. Afskriftirnar eru í samræmi við það. Bjarni og hans fjölskylda hafði sem sagt allt sitt á þurru meðan almenningur tapaði fúlgum frjár í hruninu.
Það sem undrun sætir er að þegar Logi Einarsson tók málið upp á Alþingi í dag kom Katrín Jakobsdóttir Bjarna í skjól og sá ekkert athugavert við að hann sæti í stóli fjármálaráðherra.
Erlendis væri fjármálaráðherra með þessa fortíð löngu farinn frá og ítarleg rannsókn sett í gang.
Ætlar stjórnarandstaðan að gera eitthvað í málinu, krefjast umræðu og rannsóknar á þessu, eða ætlar hún að þegja eins og flestir fjölmiðlar? Þetta mál er hneyksli og á ekki að líðast.