Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Talið ljóst hver eldsupptök voru á Strandgötu 45, Akureyri

$
0
0

Talið ljóst hver eldsupptök voru á Strandgötu 45, Akureyri

Í gær fengu slökkvilið og lögregla á Akureyri tilkynningu um að reyk lægi út um glugga á húsi við Strandgötu 45 á Akureyri og væri grunur um að eldur logaði þar innan dyra. Í ljós kom að þarna hafði eldur kviknaði í íbúð á 3ju hæð en húsið er 3 hæðir og ris.

Fljótlega eftir að lögregla og slökkvilið komu á staðinn fékkst staðfest að allir íbúar hússins væru komnir út en talið er að 3 aðilar hafi verið inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði.

Einn aðili var fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri til skoðunar en mögulegt var talið að hann hefði orðið fyrir reykeitrun. Varðandi brunann í Strandgötu 45, þá fór vettvangsrannsókn fram í dag og eftir þá rannsókn var húsnæðið afhent eigendum og tryggingafélagi. Vettvangsrannsókn leiddi í ljós að eldsupptök væru líklegast út frá rafmagni.

Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652