,,Þau vilja frekar horfast í augu við að 42 einstaklingar hafa dáið nú á árinu 2018 af völdum ópíóíða og eitrunar vegna lyfja.”
“Hvernig má það vera að 200 millj. kr. standa svo rækilega í stjórnkerfinu, í heilbrigðisráðherra og öllu sem að því lýtur? Það stendur svo harkalega í þeim að þau vilja frekar horfast í augu við að 42 einstaklingar hafa dáið nú á árinu 2018 af völdum ópíóíða og eitrunar vegna lyfja.” Sagði Inga Sæland m.a. í ræðu sem að hún flutti á Alþingi í gær um mikinn vanda sem skapast hefur vegna biðlistanna á Vogi.