Nýr Herjólfur er á leiðinni heim en lagt var af stað frá Póllandi í morgun. Áætlað er að siglingin heim taki um sex daga og því von á skipinu hingað í höfn næsta laugardag.
„Við gerum ráð fyrir að vera um sex sólarhringa á leiðinni. Það er stefnt að því að sigla honum inn til Vestmannaeyja laugardaginn 15. júní,“ sagði Guðbjartur í samtali við Eyjafréttir þegar samningurinn var loks undirritaður.
Heildarverð fyrir nýjan Herjólf er rúmlega 31 milljón evra. Ef reiknað er út frá genginu í dag er það 4,3 milljarðar íslenskra króna og er það um hálfum milljarði minna en upphaflega var gert ráð fyrir.
The post Lagðir af stað heim með Herjólf appeared first on Fréttatíminn.