Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Flugslys í Fljótshlíð, fimm alvarlega slasaðir

$
0
0

 

Laust eftir 20:30 í kvöld barst tilkynning um flugslys nálægt flugvellinum við Múlakot í Fljótshlíð. Eldur var þá laus í flugvélinni. Fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs og sjúkraflutninga HSU, ásamt tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar fóru á staðinn. Tvær þyrlur, TF-LIF og TF-EIR, voru sendar á vettvang.

Alls voru fimm aðilar í flugvélinni og eru allir alvarlega slasaðir.

Rannsóknardeild Lögreglustjórans á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og nýtur aðstoðar Rannsóknarnefndar samgönguslysa og tæknideildar Lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu.
Jafnframt hefur viðbragsteymi Rauðakross Íslands verið sent á vettvang til að veita vitnum að atvikinu sálrænan stuðning.
Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

The post Flugslys í Fljótshlíð, fimm alvarlega slasaðir appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652